Fréttir frá 2009
28. des '09
Kiddzenegger Bestur á bekknum
Núna 27 des hélt A.F.A. sitt fyrsta mót í bekkpressu í samstarfi við Viking
Gym Iceland.
19 keppendur mættir til leiks.
Kristinn ari Hinriksson stóð uppi sem sigurvegari á mótinu
með 227.5kg
Þyngd - Nafn - Lyftur
-67.5
(63,8) Jón Guðni Þórarinsson 85
- 85 - 92.5
-75
(70.7) Pascal Pálsson 105 - 110
- 115
(72.2) Aðalgeir Hilmarsson 85 - 90 - 90
-82.5
(77.8) Hilmar Henning 90 - 95
- 105
(82) Ívar Helgi Grímsson 90 - 95
- 105
(79.7) Erlingur Guðmundsson 120
- 130 - 130
-90
(87.6) Þóroddur Einar Þórðarsson 105
- 120 - 125
(88.6) Bjarni Grétar Jónsson 160 - 170
- 175
(87.8) Halldór Valur Stefánsson 75 - 82.5
- 90
(84.6) Atli Viðar Jónsson 80 - 90 - 95
(89.5) Sigurður Kristján Grímlaugsson
85 - 90 - 90
-100
(100) Árni Freyr Árnarsson 195
– 200 - 210
(92.5) Ómar Þorri Gunnlaugsson
125 – 137.5 - 150
-110
(101.1) Snorri Guðjónsson 120 – 130
- 135
-125
(114.3) Elís Hólm Þórðarson 180 – 190
- 200
(117.6) Páll Pálsson 170 – 185
- 200
-140
(128.5) Kristinn Ari Hinriksson 200 –
215 – 227.5
(132.1) Erling Tom Erlingsson
120 – 120 - 130
+140
(150) Jóhannes Atlason 90 – 100
- 115
Stigverðlaun
Drengja flokkur Bjarni Grétar Jónsson
Unglinga flokkur: Kristinn Ari Hinriksson
Opinn flokkur: Árni Freyr Árnason
Stiga hæstur Kristinn Ari Hinriksson
Viking gym Iceland gaf stiga sigurvegurunum mánaðarkort
1 Nóv '09
Jólamót
A.F.A. í bekkpressu 27 des
Aflraunafélag Akureyrar í samstarfi við Viking
Gym kynnir Jólamót A.F.A.
í bekkpressu 27. des.Keppnisgjald er 1000 kr og er vigtun
klukkan 13:0.
Mótið byrjar svo kl 15:00Keppt er eftir leikreglum WPF.Viking Gym er á
Tryggvabraut 22. (3hæð) á
Akureyri Skráning er hafin áfossdal83@hotmail.com.
Fyrirspurnir berist til Sigfúsar í síma 8669049.
4.okt '09
Víkinga stelpur Norðursins
Í dag hélt A.F.A. sína fyrstu kvenna aflraunaæfingu. og þrátt fyrir snjó og
frost stoppaði það ekki stelpunar á að mæta í superyoke og dekkjaveltu.
Eftir það fórum við niðri Viking gym og tókum drumbalyftu
og 18"deadlift
Mættu 6 stelpur á æfinguna og voru það Anna louise, Birgitta, Björg, Inginbjörg, Sólveig og Sólveig Bjarnar
Flestar að prófa þessar greinar í fyrsta skiptið og stóðu sig einsog hetjur í frostinu.
Aflraunafélag Akureyrar vill þakka kærlega Blikkrás, Gúmmívinnsluni á
Akureyri og Viking gym fyrir að hafa aðstoðað við þessa æfingu.
29. sept '09
Kvenna Aflraunaæfing á sunnudaginn
Jæja nú er sumarið að fara enda og gott sumar
að baki. A.F.A. er búið að halda Ísl.meistaramót í drumbalyftu og
Aflraunameistarann, einnig sáum við um Langanes Víkinginn en það er almennings
keppni sem haldin er á Kátum dögum í Þórshöfn.
Gengu öll mótin vel fyrir sig og
er þetta bara góðsviti fyrir næsta ár og vonumst við til að næsta ár verði en
betri hjá A.F.A.
Eins og margir vita að þá er Gemma Magnússon
og Thelma Ólafsdóttir að halda Sterkustu Konu Íslands núna 17 okt í
Vetragarðinum í Smáralind og síðast þegar við heyrðum þá eru 21 stelpa skráð í
keppnina og eru það stelpur af öllum stærðum og gerðum. Gemma bíður uppá
Aflraunaæfingar fyrir keppendur þessa móts í SUPER GYM en fyrir þær sem hafa
áhuga á að keppa þá bíður A.F.A. uppá aflraunaæfingar fyrir stelpunar sem eru á
Norðurlandinu. og stefnum við á að halda kvenna aflraunaæfingu núna á
sunnudaginn næst þannig að ef áhugi er fyrir hendi endilega hafa þá samband við
Jón Þór í síma 868-2085 eða senda okkur mail á afa@aflraunir.net
15 júlí '09
Sólveig vann réttstöðuna á Sunnumótinu.
Gjaldkerinn okkar hún Sólveig Bjarnar keppti nuna um helgina á Sunnumótinu
þar sem keppt er í bekk og réttstöðu, svo kallað Push and pull mót. En þar
keppti hún í -56kg flokki.
Lenti hún þar í öðru sæti með 140kg í
samanlögðu en hún tók 40-100 (bekkur - Réttstaða).
Þar bætti hún sig um 20kg í réttstöðunni frá guttormsmóti Metals 2008 og
vantaði 8kg uppá að hún mundi ná tvöfaldri líkamsþyngd í réttstöðu og fyrir þá
lyftu vann hún stigabikarinn fyrir réttstöðuna, og óskum við henni til hamingju
með árangurinn á Sunnumótinu.
Sunnumótið er fyrst sinnar tegundar á Íslandi en þetta mót er eingöngu ætlað
konum, og mættu rúmlega 20 stelpur til að taka á þvi.
Mótið er til heiðurs Sunnu Hlínar sem var að keppa á sínu fyrsta Power móti
en hefur keppt í fitness áður fyrr, Sunna Hlín heldur úti vefsíðuna
www.vodvafikn.net
Rúnar "Fjósi" Friðriksson og KFA eiga hrós skilið fyrir mjög flott
mót, það var alveg til fyrirmindar.
20. juni '09
Sigfús ver titilinn annað árið í röð
Alraunameistari Íslands var haldinn núna í dag laugardagainn 20 juni. Byrjað
var hæfilega seint útá flugvelli vegna mikillra pælinga hjá fugvirkjum á
svæðinu á því hvernig væri hægt að draga vélin áfram þar sem að hún er hönnuð
til að vera dregin aftur á bak.
Taka má fram að aldrei komst í það að prófa þessa grein fyrir mótið og er
þetta í annað skiptið sem reynt er að draga flugvél á íslandi í
aflraunakeppni.
Fyrstu 3 keppendur komu vélinni ekki úr sporunum. Þannig að þá
var ákveðið að breyta greininni yfir í hönd fyrir hönd á 25m en fyrir
valinu var Ford F150 pick-up og var pallurinn fylltur af krökkum af
svæðinu. Jón Þór vann þá grein en litlu mátti muna hjá Jóni Þóri og Sigfúsi
1.
Jón Þór 32.10 sek
2.
Sigfús 33.10 sek
3.
Hallgrímur 35.30 sek
4.
Árni freyr 36.30 sek
5.
Úlfur orri 37.19 sek
Mótið hélt svo áfram niðri bæ og var önnur greinin uxaganga eða
superyoke, Þar var hart barist þar sem Úlfur byrjaði á að setja góðann tíma á
25m brautina, þar á eftir fylgdi Árni sem var með þvílíkt keppnis skap og tók
hann margoft upp og hélt endalaust áfram en náði ekki endamarkinu.
Hallgrímur sem var að keppa í fyrsta skipti í uxagöngu fór með hana nokkur
spor. Þar á eftir fylgi Sigfús en hann og Úlfur voru þeir einu sem náðu alla
leið þaðan endaði Jón Þór
- Sigfús 20.8 sek
- Úlfur 25.5
- Jón Þór 19.5m
- Árni freyr 10.1
- Hallgrímur 0.5m
Drumbalyftan tók þar við en keppt var á repsum með 100kg drumb. Mótið var
keyrt nokkuð hratt í gegn þannig að ekki voru allir bunnir að jafna sig í
löppunum eftir uxagönguna og bitnaði það dálítið á sprengjunni í drumbinum.
- Sigfús 5 reps
- Árni 4 reps
- Úlfur 2 reps
- Jón Þór 0 reps
- Hallgrímur 0 reps
Bændagnagan var þar næst og var ákveðið að stytta hana vegna þreytu í mönnum
niðri 25m á tíma. Úlfur setti mjög góðan tíma fyrir Sigfús enda skokkaði Úlfur
með bændagönguna einsog ekkert væri. Sigfús gaf sig allan í þetta enda að hans
eigin sögn hefur hann aldrei hlaupið jafn hratt hvorki með bændagöngu eða án en
var samnt ekki nóg til að hafa skokkið hjá Úlfi.
- Úlfur 10.5 sek
- Sigfús 11.9 sek
- Jón Þór 17.8 sek
- Árni freyr 42.5sek
- Hallgrímur kláraði ekki
Næsta grein var hin Nyja Fingal Finger en hún var heldur ung í þetta skiptið
þar sem að þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur verið notuð á Íslandi í Aflraunakeppni
En einginn keppendana náði að klára greinina fyrir en að fjórir keppendur
réðust á hana og hentu henni yfir í ofur anda. En þessi grein byggist á því að
taka 6m langt og 150kg þungt rör upp frá jörðinni uppí 90° og þar yfir þangað
til rörið er komið í 180°
Loka staða Keppenda var
- Sigfús Fossdal (annað
árið í röð)
- Úlfur Orri Pétursson
- Jón Þór Ásgrímsson
- Árni Freyr Stefánsson
- Hallgrímur Pálmi
Stefánsson
Aðal dómari og Kynnir Þorvaldur Ásberg Kristbergsson
Aðstoðardómari og tímavörður Kristinn Ari Hinrikson
Tímaverðir Halldór Arinbjarnar
Ingibjörg
Óladóttir
Að lokum viljum við þakka Keppendum, aðstoðarmönnum og áhorfendum fyrir að
hafa komið og vonandi skemnt sér með okkur.
Einnig viljum við þakka vinum okkar í KFA (Kraftlyftingarfélagi Akureyrar)
fyrir lán á lóðum.
Og að lokum viljum við þakka kærlega öllum styrktar aðilum mótsins
Sandblástur og Málmhúðun
Hringrás
66°N
Jón sprettur
Flugsafn Íslands
B.S.A
Vífilfell
Byko
Bílvirki Akureyri
19. juni'09
Aflraunameistari Íslands 2009
Nú er kominn endanlegur keppendalisti og listi yfir greinana. Til stóð að
fleiri keppendur mundu vera enda vorum við komin með mjög sterkan hóp manna en
einsog margir vita þá eru þeir flest allir meiddir.
Keppendur í ár eru samnt ekki af verri kantinum og er meirihlutinn að stíga
sín fyrstu spor í aflraunum
Keppendur:
Úlfur Orri Pétursson
Sigfús Fossdal
Árni Freyr Stefánsson
Jón Þór Ásgrímsson
Hallgrímur Pálmi Stefánsson
Greinanar í ár eru heldur ekki af verri endanum en byrjað verður
laugardaginn 20 juni kl 12 útá flugsafni Íslands (www.flugsafn.is) í Flugvéladrætti. Förum
svo þaðan kl 14:00 niðri miðbæ Akureyrar og tökum þar restina af
greinunum. Þar til dæmis er grein sem hefur aldrei verið notuð í aflraunakeppni
á Íslandi en það er Fingal finger.
Greinar:
Flugvéladráttur 25m á tíma
Uxaganga (superyoke) ca 280kg 30m á tíma
Drumbalyfta (loglift) 100kg á reps
Bændaganga (farmers walk) 2x120kg á 50m
Fingal Finger á reps
03.
juni '09
Ingibjörg Óladóttir setti 3 Evrópumet
Ingibjörg og Sigfús Fossdal eru núna úti finnlandi að keppa í EM hjá WPC. En
ingibjörg er ein af stofnendum A.F.A,
Hún tók í dag tölunar 205- 107.5 - 193 = 505.5 og setti hun 3
Evrópumet. Óskum við öll henni til hamingju með þennan árangur.
22 mai '09
Aflraunameistari Íslands 2009
Nú verður annað árið í röð haldinn þessi keppni sem er búin að vera í dvala
síðan 1989 (ef ég man rétt).
Í fyrra þá var hun haldin í fyrsta skiptið eftir dvalan, og var það Magnús
Ver Magnússon og Sigfús Fossdal sem tóku sig til við að blása lífi í hana.
Sjö keppendur mættu á svæðið og af þeim var einn frá USA hann Adam
Keep, og var það okkar eigin Formaður sem vann í fyrra.
Mótið var haldið um verslunarmannhelgina á Akureyri 2008 en verður núna
haldin 20 juni 2009.
Núna í ár verður það svo Aflruanafélag Akureyrar sem heldur utan um keppnina
og einsog áður kom fram verður hun haldin 20 juni á Akureyri.
12 april '09
Heisi fyrsti Íslandsmeistari í drumablyftu
Þá er fyrsta mót Aflraunafélags Akureyrar lokið,
Hrikalegar lyftur og ótruleg tilþrif,
Viljum við líka byrja á að þakka vinum okkar
og nágrönnum í Kraftlyftingarfélagi Akureyrar (KFA) fyrir að hafa lánað okkur
æfingaraðstöðu sína fyrir upphitun og lóð fyrir mótið, einnig Lyftingarfélag
Akureyrar fyrir lán á 2 dómurum.
12 keppendur voru skráðir á mótið og var smá um
byrjunar örðuleika en nokkur mannaskipti voru fyrir mót Valdi bolla var meiddur
í olboganum, binni hætti við en við fengum 2 auka menn inn til að halda
12 keppendum, svo um morguninn var Arnar loggur sem átti að vera þulur orðinn
mállaus af hálsbolgu.
O= hvítt (gild)
X = rautt (ógild)
Kristinn Óskar Haraldsson (Boris) átti hrikalega
létta 180kg lyftu, en í gleðinni gleymndann sér aðeins og sleppti drumbnum uppi
sem gerði lyftuna ógilda, (þarft að fylgja loggnum niður að kassanum.
Heiðar Geirmunds (Heisi) átti mjög flotta 175kg
lyftu sem trygði honum sigur og Íslandsmetið í drumbalyftu, en að eigin sögn á leiðinlegan
hátt miðað við hvernig fór fyrir Boris. Heisi var sá eini sem náði gildri lyftu
í 3 umferð og var þvi einn sem mátti gera
4 tilraun uppá met og klikkaði hann á hrikalegri anda lyftu uppá 185kg.
Stefán
Sölvi tók 170kg og klikkaði á 180kg lyftunni. En einsog hann sagði “þetta er
bara byrjunin” og miðað við kraftana í strákunum á þessu móti þá verða þeir
hrikalegri á næsta Íslandsmeistaramóti, og stutt í 200kg hjá Boris og
Heisa.
Í fyrstu lyftunni hjá Sigfús fossdal þá stóð til
að hann ynni tilþrifa bikarinn þar sem hann missti hann bakvið sig og
drumburinn rúllaði útaf sviðinu fyrir aftann.
En strax í annari umferð var
Ólafur Valur staðráðinn í að toppa Sigfús þannig að hann fór sjálfur og rúllaði
útaf aftan af sviðinu, sem betur fer náðu stangarmenn að stoppa drumbinn áður
en hann fór á eftir honum niður.
Gísli
Rúnar var að keppa á sínu fyrsta aflraunarmóti þarna og sást að hann er
mjög efnilegur pressari, en hann tók 110 og klikkaði á 120, og
skemntilegt að benda á að hann tók eina æfingu með drumb fyrir mótið og þar
áður hafði hann aldrei tekið í hann.
Mótið Heppnaðist á allan hátt mjög flott,
hrikalega öflugir keppendur og gömul kempa sem kynnir en það var einginn annar
en Torfi Ólafsson krafta og aflraunamaður sem bjargaði okkur á mjög stuttum
fyrirvara.
Dómarar mótsins voru
þeir:
Elvar Óskarsson
Tryggvi Heimisson
Erlendur Jóhannesson
Ritari:
Ingibjörg Óladóttir
Aflraunafélag
Akureyrar vill þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkar að gera þetta mót mögulegt og einnig öllum
keppendunum og áhorfendunum sem mættu á svæðið.
Styrktaraðilar að mótinu voru
Medico.is
Vifilfell
Kaffitár
Perform.is
Vaxtarvorur
Nói Síríus
Jón Sprettur
Kaldi
Sveinbjarnargerði
Vélsmiðjan
08
Mars '09
Umboð fyrir Metal á Íslandi.
Fyrir stuttu síðan hafði Jóhanna Eiríks samband við mig og bauð mér að taka
við umboðinu fyrir Metal á Íslandi, þar sem hún hafði hug á að hætta með það.
Mér leist mjög vel á það og náðum við góðu samkomulagi um að ég tæki við af
henni og er ég þegar kominn í fullt samband við Minnu og Ano hjá Metal í
Finlandi.
Ég mun sjá um að panta frá þeim vörur, fyrir þá sem hafa áhuga, en þau verð
sem ég ætla að bjóða uppá verða frekar ódýrari en þau sem fólk myndi fá með því
að panta sjálft.
Á síðunni http://www.gometal.com er
hægt að sjá uppá hvað verið er að bjóða.
Margir af bestu lyfturum heims nota vörur frá Metal, til dæmis tók ég
sjálfur þyngstu lyftu Íslandssögunnar á bekk í slopp frá þeim, og Benedikt
Magnússontók 440 kg í réttstöðulyftu sem var þyngstalyfta mannkynssögunar í
deddi, í réttstöðulyftubrók frá þeim.
Hafið það gott.
Með powerkveðju, Sigfús Fossdal
Bændagangan tilbúin.
Í gær var farið í það að vinna aðeins í græjum félagsins. Farið var í að
þyngja Bændagönguna, og voru þær settar uppí 120kg hvor (og einsog sést á
myndinni er þetta löggild vigt). Viljum við þakka kærlega Sandblástur og
Málmhúðun fyrir að skaffa efni í þynginguna og einnig viljum við þakka
Valgarði Óla Ómarssyni fyrir að skaffa okkur vigt og rosalega þolinmæði.
14
Febrúar '09
Reglur Íslandsmeistaramóts í
drumbalyftu
- Keppt verður með Drumb sem
er í eigu A.F.A.
- Keppt verður uppá mestu
þyngd.
- Hver keppandi fær 3 lyftur.
- Drumburinn situr á dekkjum
- Keppandi hefur 60 sek. til
að klára lyftuna
- Þegar keppandinn hefur
komið sér fyrir spyr dómari "ertu tilbuinn" þegar keppandi hefur
svarað segir dómarinn "byrja" og þá fer tíminn á stað.
- Taka þarf drumbinn frá
golfi og upp fyrir höfuð með læsta olboga og hné, þá gefur dómarinn merkið
"niður" og þarf þá að taka drumbinn niður með stjórn til að
klára lyftuna
- Ef ekki tekst að ná einni
gildri lyftu þá fellur keppandinn úr keppni
- Sé keppandi 10kg frá
íslandsmetinu í 3 lyftu á hann rétt á 4 lyftu til að bæta metið um lámark
2,5kg.
- Ekki er leyfinlegt að hvíla
drumbinn ofaná hausnum
- Leyfður búnaður er belti,
uliðsvafningar og magnesium
- Olboga vafningar eru ekki
leyfðir
06
Febrúar '09
Fyrsta mót A.F.A.
Nuna er fyrsta mót Aflraunafélags Akureyrar ákveðið. Við ætlum að taka
forskot á sæluna og hafa Íslandsmótið í
drumbalyftu. Sem er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en eitthvað
hefur verið keppt í þessu útí í heimi. Mótið verður nuna um páskana 10-11 april
Stefnt er að hafa þetta sem árlegan viðburð og vonumst við eftir sem bestu
þátttöku á mótið.
Nóg verður að gerast í kringum þessa helgi þar sem mótið
mun vera á sama svæði og Íslandsmóts IFBB í
fitness og vaxtarrækt.
Skráning og upplysingar eru inná Mótskrá og
Úrslit hérna vinstra megin
Ef þið hafið einhverjar ábendingar eða fyrirspurnir þá endilega hafið
samband afa@aflraunir.net
3.
februar '09
Stofnun Aflraunafélags Akureyrar.
Aflraunafélag Akureyrar var stofnað á haustmánuðum 2008, á sama tíma og
mikil vandræði og neikvæðni riðu yfir landsmenn í fjármálavandræðum
þjóðarinnar ákváðum við að horfa frekar fram á veginn og stofnuðum nýtt
félag. Félag sem hefði að leiðarljósi að byggja upp aflraunir og kraftlyftingar
á Akureyri og Íslandi öllu.
Við erum óháð öllum öðrum, og eru allir velkomnir á
mót á okkar vegum, og félagsmönnum okkar frjálst að keppa hvar annarsstaðar sem
þeir kjósa. Við ætlum að koma okkur upp tækjum til æfinga og keppni í
sportunum, og halds mót, bæði fyrir heimamenn og fyrir allt landið. Við höfum í
hyggju að halda Aflraunameistara Íslands, Aflraunameistara Akureyrar,
Íslandsmótið í drumbalyftu, sem og uppi eru hugmyndir um keppni fyrir meistara
meistarana í Kraftlyftingum og framhaldsskóla keppni í aflraunum.
Við erum opin
fyrir öllu og ætlum að reyna að byggja félagið upp þannig að hagsmunir
sportsins gangi fyrir, en ekki hagsmunir einstaklinga.
Endilega verið sendið okkur fyrirspurnir um það sem ykkur langar að vita, og
verið ávalt velkominn á mót. Verið heldur ekki hrædd við að leita ráða, það eru
allir hjá okkur tilbúnir að rétta fram hjálparhönd.
Kær kveðja Sigfús Fossdal, formaður AFA.
Aflraunafélag Akureyrar
komin með heimasíðu.
2.
febrúar '09
Nú er síðan hjá Aflraunafélagi Akureyrar í vinnslu þannig
að endilega fylgist með.